Innlent

55 bílar sinna snjóhreinsun í Reykjavíkurborg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heildarlengd gatna sem þarf að hreinsa er 445 km.
Heildarlengd gatna sem þarf að hreinsa er 445 km. vísir/pjetur
Í dag verða í heildina um 55 öflugir bílar og tæki nýtt til snjóhreinsunar í Reykjavíkurborg og að auki er 25 manna reyndur flokkur fá hverfastöðvunum við störf á flokkabílum með ýmsan búnað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Í nótt klukkan 4:00 var mannskapur og tæki ræst út til starfa við snjóhreinsun og hálkueyðingu í Reykjavík.

Í tilkynningunni segir að skipta megi verkefnum Reykjavíkurborgar við snjóhreinsun og hálkueyðingu í þrennt eftir hvort um er að ræða umferðargötur, stíga og gangstéttar eða stofnanalóðir og strætóskýli. Aðstæður kalla á mismunandi tækjakost og aðferðir, en markmiðið er það sama: að tryggja greiðar leiðir.

Í dag verða 35 bílar og vinnuvélar notaðar við snjóhreinsun og hálkueyðingu á umferðargötum og eru þá ótaldar vélar Vegagerðarinnar sem sinnir snjóhreinsunar á stofnbrautum að miklu leyti. Götum er skipt í þjónustuflokka eftir forgangi og var unnið í öllum flokkum gatna í gær og verður áfram í dag og næstu daga.

Heildarlengd gatna sem þarf að hreinsa er 445 km. og þær þarf að fara oft til að ryðja öllum snjó. Á stígum og gangstéttum eru 13 sérútbúnar dráttarvélar með plóga og sanddreifingarbúnað á ferðinni og hafa verið frá því klukkan fjögur í nótt og verða fram á kvöld. Heildarlengd stíga og gangstétta sem falla undir vetrarþjónustu eru 687 km.

Sérstakur hópur með 6 traktorsgröfur var einnig ræstur út í nótt en hann sér um hreinsun á strætóbiðstöðvum, sem og við leikskóla, grunnskóla, sundlaugar og nokkrar stofnanir Reykjavíkurborgar.

Þá er um 25 manna hópur frá hverfastöðvunum sem sér um mokstur á stöðum sem tæki komast ekki að og einnig sér hópurinn um að sanda og salta við stofnanalóðir og á strætóbiðstöðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×