Innlent

50 þúsund hús sýkt af svepp

Sumir geta búið við myglusvepp án þess að fá nokkur heilsufarsleg einkenni, aðrir geta hlotið varanlegan skaða.
Sumir geta búið við myglusvepp án þess að fá nokkur heilsufarsleg einkenni, aðrir geta hlotið varanlegan skaða.
Gert er ráð fyrir að um 30 prósent íslenskra húsa séu sýkt af myglusvepp. Um 160 þúsund hús eru skráð á Íslandi, þar af 70 þúsund íbúðahús sem í eru um 130 þúsund íbúðir.

Indriði Níelsson verkfræðingur segir að gera megi ráð fyrir því að hlutfall myglusvepps í húsum hér á landi sé eins og í nágrannalöndum okkar, ef marka megi rannsóknir.

Hann segir svepp geta komið upp í gömlum húsum sem nýjum, allt snúist það um rakastig.

„Ef nýtt hús er illa byggt getur hann hæglega komið þar upp,“ segir hann. „Við fengum nýlega verkefni þar sem fjölskylda í nýju húsi þurfti að flytja út í tvo mánuði. Heimilisfaðirinn náði heilsu um leið og hann flutti að heiman.“

Í grein sem Indriði skrifar í Gangverk, fréttarit Verkís, kemur fram að reikna megi með að myglusveppur, eða „húsasótt“, sé algengari á heimilum en í öðrum húsum. Íbúar geti verið seinir að átta sig á ástandinu og viðgerðir geti verið kostnaðarsamar. Oft geti lausnin þó einfaldlega falist í því að opna glugga og lofta vel út.

„Þetta snýst um að húsinu sé haldið vel við svo leki komi ekki inn,“ segir hann.

Indriði segir æ fleiri tilfelli koma upp, en ástæða þess sé sennilega sú að fólk sé að uppgötva sveppinn í meiri mæli.

Heilsufarslegar afleiðingar hjá þeim sem búa við myglusvepp eru misjafnar. Sumir geta búið við það í langan tíma án þess að fá nokkur einkenni, aðrir geta hlotið varanlegan skaða.

Hannes Petersen, yfirlæknir á háls-, nef- og eyrnadeild Landspítalans, segir eitt einkenni vera krónískar bólgur í öndunarvegi. Fólk sofi illa, fái hausverk og verk í andliti. Erfitt geti verið með greiningu því einkenni séu svipuð og í venjulegri flensu.

„Það getur orðið erfitt ef fólk býr í sveppamenguðum húsum og hefur engin einkenni,“ segir Hannes. „Svo er til fólk sem býr við örlítinn svepp og fær afar slæm einkenni.“

Ekki eru til neinar rannsóknir sem styðja skaðleg áhrif sveppamengunar í húsum með óyggjandi hætti, en Hannes segir þó að ef fólk er undir stöðugri árás sveppa geti það vissulega haft óæskileg áhrif til lengri tíma.- sv



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×