Viðskipti innlent

50 þúsund fjölskyldur eiga hlutabréf

ingvar haraldsson skrifar
Samanlagður fjöldi hluthafa í Kauphöll Íslands er 21 þúsund.
Samanlagður fjöldi hluthafa í Kauphöll Íslands er 21 þúsund. vísir/gva
Um 50 þúsund fjölskyldur á Íslandi eiga hlutabréf og hefur sá fjöldi farið vaxandi frá árinu 2011. Þetta kemur fram í markaðspunkti Arion Banka.

Sé bara horft á hluthafa í Kauphöll Íslands eru samanlagður fjöldi þeirra 21 þúsund. Þó er einhverjir aðilar á þeim lista margtaldir því aðilar sem eiga hlutabréf í fleiri en einu félagi taldir oftar en einu sinni. Hluthöfum hefur fjölgað um 7 prósent á milli ára.

Flestir eru hluthafarnir í Össuri eða tæplega 3.300 talsins. Aftur á móti eru einungis um þriðjungur hlutabréfa Össurar í eigu innlendra aðila, en bréf félagsins eru einnig skráð í Danmörku. Að teknu tilliti til þess má gera ráð fyrir að flestir innlendir fjárfestar séu í Sjóvá, eða um 3.000 talsins. Fæstir voru hluthafarnir í Nýherja, eða 329 talsins og fjölgaði þeim um 51 milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×