Heilsa

5 bestu megrunarkúrarnir 2015

Rikka skrifar
visir/getty
Fyrr í morgun settum við á Heilsuvísi fram niðurstöðu úr könnun sem að Fréttaveitan US News & World Reports stóð fyrir. Hérna koma bestu megrunarkúrarnir að mati hóps af bandarískum læknum og næringafræðingum.

DASH kúrinn 

Upprunalega var DASH kúrinn notaður til þess að lækka blóþrýsting þeirra sem á þurftu að halda en með reynslunni kom svo í ljós að hann hafði ýmsa aðra kosti eins og að minnka mittismálið og auka á almenna heilsu. Mikið er um grænmeti og trefjar í þessum kúr

TLS kúrinn 

Markmiðið með þessum kúr er að lækka blóðfitu í líkamanum og þar að leiðandi koma í veg fyrir lífstílstengda sjúkdóma. Í kúrnum er aukið magn af trefjum og hreinu fæði en neysla á ákveðinni fitu minnkuð.

Mayo Clinic kúrinn 

Aðstandendur Mayo Clinic kúrsins vilja ekki meina að hann sé kúr heldur lífstílsbreyting til hins betra. Kúrinn tekur á skammtastærðum matarins auk reglubundinnar hreyfingar. Eins og flestir aðrir kúrar er áhersla lögð á mikla neyslu grænmetis og fitusnauðs kjöts.

Miðjarðarhafskúrinn

Þessi kúr er bara ansi hreint girnilegur en hann fylgir mataræði miðjarðarhafsbúa. Fullt af grænmeti, ólifuolíu, fræum, baunum og rauðvín í hófi. Það sem er líka skemmtilegt við þennan lífstíl er að matsins á að vera neytt í góðra vina hópi sem og með góðu hugarfari.

Weight Watchers

Þessi kúr er einn sá vinsælasti í heiminum og þá sérstaklega hjá stjörnunum í Bandaríkjunum. Fullt af girnilegum uppskriftum fylgja þessum kúr og virðist hann vera hin skynsamlegasti.


Tengdar fréttir

5 verstu megrunarkúrarnir 2015

Fréttaveitan US News & World Reports stóð fyrir könnun á meðal lækna og næringarfræðinga í Bandaríkjunum á dögunum. Könnunin gekk út á að velja bestu og verstu megrunarkúrana með tiliti til virkni, einfaldleika, hollustu og öryggis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×