Bílar

4MATIC jeppasýning hjá Öskju

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz GLE.
Mercedes Benz GLE.
Bílaumboðið Askja býður til 4MATIC jeppasýningar á laugardag kl. 12-16. Þar verður sýnd öll nýja jeppalína þýska lúxusbílaframleiðandans. Um er að ræða lúxussportjeppana GLA, GLC, GLS, GLE og GLE Coupé, auk hins rómaða G-jeppa.

GLC og GLE verða m.a. sýndir í Plug-In-Hybrid útfærslum en tengiltvinntæknin nýtur sífellt meiri vinsælda. Allir bílarnir eru með 4MATIC fjórhjóladrifinu frá Mercedes-Benz. Þá verður einnig úrval af fjórhjóladrifnum atvinnubílum frá Mercedes-Benz til sýnis í Öskju á laugardag og má þar nefna V-Class, Vito og Sprinter bíla í ýmsum útfærslum.

4MATIC er eitt fullkomnasta aldrifskerfi sem völ er á og er nú í boði í öllum gerðum sjálfskiptra bíla frá Mercedes-Benz. 4MATIC kerfið deilir vélarafli og snúningsvægi til allra fjögurra hjóla bílsins eftir þörfum hverju sinni, jafnt þegar ekið er á bundnu slitlagi sem í torfærum.

Boðið verður upp á ýmis tilboð í tilefni sýningarinn. 20% afsláttur verður veittur af Mercedes-Benz aukahlutum og 25% afsláttur af rúðuþurrkum, frí ásetning og áfylling á rúðuvökva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×