Erlent

48 klukkustundum frá stríði í Sýrlandi?

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Munu Bretar bætast í hóp þjóða sem varpa sprengjum á Sýrlendinga?
Munu Bretar bætast í hóp þjóða sem varpa sprengjum á Sýrlendinga? Vísir/EPA
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að neðri deild þingsins muni kjósa á miðvikudag um hvort Bretar taki þátt í loftárásum gegn meðlimum Íslamska ríkisins í Sýrlandi.

Bretar hafa til þessa varpað sprengjum í Írak og óskar Cameron eftir því að umboðið verði aukið – „til að svara kalli vinaþjóða okkar og vinnum með þeim því Íslamska ríkið er ógn við land okkar og það er það rétta í stöðunni,“ lét hann hafa eftir sér.

Forsætisráðherrann ákvað að ganga til kosninga í kjölfar ákvörðunar Jeremy Corbyn, leiðtoga Verkamannaflokksins, um að leyfa þingmönnum sínum að kjósa eftir eigin sannfæringu í málinu. 

Cameron segir að hann finni fyrir auknum stuðningi við loftárásir í þingsalnum og að þær séu það rétta í stöðunni – þegar hagsmunir bresku þjóðarinnar eru hafðir að leiðarljósi. Corbyn mótmælti ákvörðun Camerons í dag á þeim forsendum að kosningar færu fram eftir einungis eins dags umræður í þinginu.

Hann hefði heldur viljað að þær stæðu yfir í tvo daga í ljósi þess að það væri farið „að kvarnast úr“ málflutningi forsætisráðherrans sem ætti að „hætta að ana út í stríð.“ Cameron vísaði þessari gangrýni á bug og sagði að umræðurnar yrðu yfirgripsmiklar.

„Við munum sjá til þess að jafn margar spurningar um málið og hefðu verið bornar upp á tveimur dögum rati í eins dags umræður,“ sagði forsætisráðherrann. „Ég vil að þingmenn einbeiti sér að fullu, flytji ræður, komi með athugasemdir, spyrji spurninga og grandskoði málflutning ríkisstjórnarinnar,“ bætti Cameron við. 

Hann hefur áður sagt að hann myndi ekki fara fram á slíka atkvæðagreiðslu í þinginu ef það væri ekki fyrir þá staðföstu trú hans að hann myndi sigra kosninguna. Þó er nokkur andstaða við aukinn stríðsrekstur í röðum hans eigin röðum, það er meðal þingmanna Íhaldsflokksins, og þvi er ljóst að hann þarf að reiða sig á stuðning annarra flokka svo sigurinn hafist. 

Þann stuðning ætlar Cameron sér að sækja til Verkamannaflokksins eftir að forystusveit flokksins ákvað að leyfa þingmönnum hans að kjósa eftir eigin sannfæringu – þrátt fyrir að leiðtogi Verkamannaflokksins, fyrrnefndur Corbyn, sé mikill andstæðingur hvers kyns hernarðarbrölts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×