Heilsa

4 daga skólavika?

heilsuvísir skrifar
Vísir/Getty
Rannsóknir styða styttri vinnuviku, lengri helgi. 

Vinnuvikan færi niður í fjóra daga og helgin yrði þá þrír dagar.

Rannsóknir hafa sýnt að það myndi leiða af sér aukið heilbrigði, betri svefn, og betri frammistöðu í vinnunni.

Nýleg rannsókn leiddi svipað í ljós fyrir börn í skóla.

Börn í fjórða og fimmta bekk bættu frammistöðu sína í stærðfræði við það að skólavikan væri stytt og það hafði ekki neikvæð áhrif lestrarhæfni.

Dagurinn í skólanum var lengdur til að bæta upp fyrir auka frídag en samkvæmt niðurstöðum rannsókna kom það ekki að sök.

Þetta hefur nú þegar verið prófað í mörgum skólum víða um Bandaríkin, af meðal annars hagkvæmnis ástæðum, og hefur gefist vel.

Hvernig væri að prófa þetta á Íslandi og þá samhliða að stytta vinnuvikuna?


Tengdar fréttir

Tímabært að stytta vinnuvikuna

Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla segir Íslendinga geta stytt vinnuvikuna eins og aðrar þjóðir án þess að skerða launin.

Vilja stytta vinnuvikuna í 35 tíma

Tveir þingmenn Pírata og þingmaður Samfylkingar hafa lagt fram frumvarp þessa efnis að vinnuvikan verði stytt úr 40 klukkustundum í 35.

Eigum við að lengja vinnudaginn?

Undanfarna daga hafa berið birt nokkur viðtöl við nóbelsverðlaunahafann Edward C. Prescott um að lækka ætti skatta svo fólk fengist til þess að skila lengri vinnudegi. Hannes Hólmsteinn bauð svo upp á ráðstefnu um þetta málefni.

Stytting vinnuviku í Reykjavík

Nú um mánaðamótin hefst afar spennandi tilraunaverkefni í Reykjavík um styttingu vinnudags án launaskerðingar. Verkefnið nær til tveggja starfsstaða borgarinnar;

Opinberir starfsmenn vilja styttri vinnuviku

Stytting vinnuvikunnar úr 40 klukkustundum í 36 er meðal þess sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) leggur áherslu á í viðræðum við viðsemjendur sína – ríki og sveitarfélög. Aðildarfélög bandalagsins fara með kjarasamningsumboðið hvert fyrir sig en hafa falið forystu bandalagsins að fjalla um nokkur tiltekin mál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×