4 ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll 2. febrúar 2012 09:52 Mennirnir voru dæmdir í 4 ára fangelsi. mynd/Vilhelm
Tveir erlendir karlmenn voru dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þá var mönnunum gert að greiða fórnarlambinu 1200 þúsund krónur í miskabætur. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa að morgni sunnudagsins 16. október á síðasta ári, tekið konu upp í bifreið við Laugaveg í Reykjavík og ekið með hana að Reykjavíkurflugvelli. Og þar í aftursæti bifreiðarinnar þröngvað henni með ofbeldi til samræðis. Mennirnir játuðu við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa tekið konuna upp í bifreiðina og ekið með hana að Reykjavíkurflugvelli þar sem kynferðisleg samskipti hafi átt sér stað. Framburður þeirra um hvað gerðist nákvæmlega var þó ekki samhljóða, en hvorugur kannaðist við að hafa þvingað konuna til kynferðismaka. Í yfirheyrslum hjá lögreglu var framburður konunnar aftur á móti greinargóður og skýr. Hún sagði mennina hafa boðist til að aka sér í verslun sem hún ætlaði í og hafi hún þegið það. Hún hafi reynt að telja mönnunum trú um að hún væri smituð af HIV í þeim tilgangi að fá þá til að hætta ofbeldinu. Þá hafi hún einnig öskrað en þegar hún hafi gert það hafi ökumaðurinn tekið hana hálstaki og lamið hana í andlitið. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því að þeir voru handteknir í október. Þeir þurfa að sitja í fangelsi í fjögur ár og greiða konunni 1,2 milljónir í miskabætur. Dómurinn var kveðinn upp í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ætla mennirnir að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Sjá meira