Fótbolti

39. þrenna Ronaldo afgreiddi Atletico Madrid í baráttunni um borgina

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. vísir/getty
Real Madrid vann öruggan sigur á  Atletico Madrid 3-0 á útivelli og það í leiknum um Madridarborg.

Cristiano Ronaldo fór hreinlega á kostum í leiknum og skoraði hann þrennu, eða öll mörk gestanna.

Þetta er 39. þrenna Ronaldi á ferlinum sem er með hreinum ólíkindum. Atletico Madrid hefur nú tapað þremur af síðustu fjórum leikjum liðsins í deildinni.

Real Madrid í efsta sæti deildarinnar með 30 stig, níu stigum á undan grönnum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×