Innlent

38 óku af hratt á Sævarhöfða

Randver Kári Randversson skrifar
Lögreglan myndaði hraðakstur ökumanna á Sævarhöfða í dag.
Lögreglan myndaði hraðakstur ökumanna á Sævarhöfða í dag. Vísir/Róbert
Brot 38 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík í dag, en fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í suðurátt, að Malarhöfða.

Á vef lögreglunnar kemur fram að á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Sævarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×