Lífið

35 milljónir fyrir barn síns tíma sem þarfnast verulegrar lagfæringar

Birgir Olgeirsson skrifar
Þetta hús er verðlagt á 35 milljónir króna.
Þetta hús er verðlagt á 35 milljónir króna. Fasteignavefur Vísis
Þetta einbýlishús við Vitastíg 8 í Hafnarfirði er komið á sölu, en eigandi þess hefur sett 35 milljónir króna á húsið.

Um er að ræða bárujárnsklætt timburhús á steyptum kjallara en í umsögn um húsið segir að flatarmálið sé 94,7 fermetrar auk fimmtán fermetra geymsluskúrs á lóðinni sem er sagður lélegur.

Er húsið sagt barn síns tíma og að það þarfnist verulegrar lagfæringar. Er staðsetningin á húsinu jafnframt sögð áhugaverð. 

„Lélegur“ geymsluskúr er á lóðinni.Fasteignavefur Vísis
Húsið þarfnast verulegrar lagfæringar.Fasteignavefur Vísis





Fleiri fréttir

Sjá meira


×