32 manna úrslit í Stjörnuleitinni í kvöld 19. nóvember 2004 00:01
32 manna úrslit í IDOL Stjörnuleitinni fara fram á Stöð 2 klukkan 20:40 í kvöld. Nú munu atkvæði sjónvarpsáhorfenda ráða úrslitum en dómnefndin verður samt áfram að störfum, þó aðeins til að gefa álit. Úrslitin verða alfarið í höndum landsmanna en símanúmer keppenda eru auglýst í þættinum. Niðurstaða símakosningar verður tilkynnt í beinni útsendingu á ellefta tímanum í kvöld. Sett hefur verið upp sérstök heimasíða fyrir hvern keppanda á idol.is og þar má finna upplýsingar um SMS-númer og símanúmer viðkomandi fyrir símakosninguna í kvöld. Athygli hefur vakið að líkt og í fyrra mættu mun fleiri stúlkur en strákar í áheyrnarprófin en það er samt ljóst að karlpeningurinn á líka mjög góða fulltrúa í þessari keppni. Alltof snemmt er að spá fyrir um úrslit en það eina sem er víst er að veturinn verður mjög spennandi á Stöð 2 en ný Idol-stjarna verður krýnd í Vetrargarðinum í Smáralind 11. mars 2005. Anna Katrín Guðbrandsdóttir, Jón Sigurðsson og Kalli Bjarni komust í úrslitaþáttinn í fyrra þar sem sem sá síðastnefndi hrósaði eftirminnilegum sigri. Að þessu sinni verða aðeins tveir keppendur í lokaþættinum. Það eru Lísbet Hauksdóttir, Hildur Magnúsdóttir, Gísli Hvanndal Jakobsson, Svava Hrund Friðriksdóttir, Valgerður Friðriksdóttir, Hólmfríður Nordfjörð, Davíð Smári Harðarson og Brynja Valdimarsdóttir sem ríða á vaðið í fyrsta hluta 32 manna úrslita. Þau koma víða að en yngst eru Brynja og Gísli Hvanndal sem bæði eru 19 ára. Lísbet, Svava Hrund og Davíð Smári eru elst, 24 ára. Aðeins tveir halda áfram eftir hvern þátt en samt er ekki öll nótt úti enn fyrir hina. Dómnefndin tilnefnir átta söngvara í sérstakan þátt (Wild Card) í næsta mánuði. Þá verða valdir síðustu tveir keppendurnir í 10 manna úrslit. Ljóst er að marga dreymir um að slá í gegn en í áheyrnarprófunum í haust spreyttu allmargir sig öðru sinni. Margir höfðu bætt sig töluvert frá fyrra ári og einn keppandi er kominn í 32 manna úrslit öðru sinni. Þess skal jafnframt getið að á þessu stigi stjörnuleitarinnar fá söngvararnir að flytja lag að eigin vali. IDOL-vefurinn
Menning Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira