Viðskipti innlent

311 milljóna króna hagnaður hjá Já

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já. Vísir/Valli
Fram kemur í tilkynningu frá Já að fyrirtækið hafi hagnast um 311 milljónir króna á árinu 2013. Er þetta 54 milljón krónum meiri hagnaður en árið á undan. Já sér meðal annars um rekstur Já.is, útgáfu Símaskrárinnar og rekstur 1818 (var áður 118).

Starfsmenn Já á síðasta ári voru tæplega 100 talsins. Sérfræðingum innan fyrirtækisins fjölgaði en þjónustufulltrúum fækkaði.

„Síðasta starfsár var mjög gott ár í okkar rekstri.  Við höfum lagt áherslu á að fjárfesta í framtíð félagsins á sviði stafrænnar þjónustu.“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, í tilkynningu fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×