Viðskipti innlent

304 ferðamenn á hverja 100 íbúa

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ísland meðal þeirra ríkja sem hafa hæsta hlutfall ferðamanna á íbúa.
Ísland meðal þeirra ríkja sem hafa hæsta hlutfall ferðamanna á íbúa. Vísir/GVA
Ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað margfalt umfram landsmenn. Árið 1949 komu 4 ferðamenn til landsins fyrir hverja 100 íbúa en samsvarandi hlutfall var 304 á móti hverjum 100 á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræðideildar Landsbankans um ferðaþjónustu á Íslandi sem fjallað er um í Hagsjá, fréttabréfi Hagfræðideildarinnar.



Þar kemur fram að Ísland er í 18. sæti af 152 aðildarríkja Alþjóðabankans árið 2012 miðað við þennan mælikvarða á fjölgun ferðamanna. Það setur landið í topp 11 prósent. „Erlendum ferðamönnum fjölgaði mikið hér á landi bæði árin 2013 og 2014 og því er líklegt að Ísland hafi fikrað sig ofar á þessum lista,“ segir bankinn.



Þau lönd sem eru ofar en Ísland á listanum eru helst lönd sem byggja efnahag sinn að stórum hluta á ferðamennsku og í öðru lagi eru þetta smáríki eða tiltölulega fámenn ríki, að því er segir í skýrslunni. Aðeins þrjú ríki eru ofar en Ísland á listanum með yfir milljón íbúa; Austurríki, Króatía og Eistland.



Mikill vöxtur hefur verið í komu ferðamanna hingað lands síðustu ár en segja má að sérstakt vaxtarskeið hafi byrjað árið 2011. Það tímabil er orðið þriðja mesta fjögurra ára vaxtarskeið íslenskrar ferðaþjónustu. Leita þarf fimmtíu ár aftur í tímann til að finna meiri vöxt á fjögurra ára tímabili.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×