Fótbolti

30 prósent af EM-hóp íslenska landsliðsins eru "nýliðar“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Strákarnir fagna því að vera komnir á EM í Frakklandi.
Strákarnir fagna því að vera komnir á EM í Frakklandi. Vísir/Vilhelm
Íslenska landsliðið sem er á leiðinni á EM í Frakklandi hefur verið í mótun í mörg ár og margir leikmannanna hafa öðlast mikla landsleikjareynslu þótt þeir mæti nú á stóra sviðið svolítið blautir á bak við eyrun.

Árangurslaus og áhugalaus ár landsliðsins fyrir nokkrum árum eru kannski í dag eins og fjarlæg martröð eftir ævintýralegan árangur strákanna okkar síðustu ár, en þau skipta samt liðið í dag máli.

Liðið var vissulega í miklum vandræðum undir stjórn Ólafs Jóhannessonar en hans verður þó alltaf minnst sem landsliðsþjálfarans sem gaf flestum úr gullkynslóðinni sín fyrstu kynni af því að spila fyrir A-landsliðið.

Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara íslenska landsliðsins, sá líka ástæðu til þess að þakka þeim Ólafi Jóhannessyni og Pétri Péturssyni fyrir að gefa mörgum af þessum strákum sem eru nú á leiðinni á Evrópumótið sína frumraun með landsliðinu.

Sjö af ellefu sem byrjuðu á móti Hollandi

Átta úr EM-hópnum léku sinn fyrsta A-landsleik fyrir Ólaf og sjö þeirra spiluðu sinn fyrsta leik í keppni í þjálfaratíð hans. Það er ekki þó bara fjöldinn sem skiptir hér máli heldur hverjir þetta eru. Af ellefu byrjunarliðsmönnum í sigrinum eftirminnilega á móti Hollandi í Amsterdam í september í fyrra spiluðu sjö þeirra fyrsta leikinn fyrir Ólaf en aðeins einn lék sinn fyrsta landsleik í tíð Lars og Heimis.

Landsliðið hefur náð frábærum árangri síðustu ár undir stjórn þeirra Lars og Heimis en liðið er samt sem áður í stöðugri þróun. Níu af leikmönnum léku sinn fyrsta landsleik eftir að þeir tóku við liðinu og sjö leikmannanna hafa aðeins spilað í vináttulandsleikjum. Þeir eru í raun enn þá nýliðar í landsliðinu því það er tvennt ólíkt að spila vináttuleik fyrir Ísland eða leik í undankeppni stórmóts.

Það að þrjátíu prósent EM-hópsins hafi ekki spilað leik sem skiptir máli er kannski há tala en þegar á hólminn er komið munu þeir Lars og Heimir örugglega veðja á þá stráka sem sáu til þess að Ísland fær að leika á stóra sviðinu í fyrsta sinn í næsta mánuði. Liðsheildin sem þeir hafa náð að mynda í kringum sína fastamenn er mögnuð og án vafa það sem hefur komið íslenska liðinu svona langt.

Fram undan eru vináttuleikir við Noreg og Liechtenstein í þessari viku og svo byrjar fjörið eftir aðeins fimmtán daga þegar Ísland tekur á móti Cristiano Ronaldo g félögum í í portúgalska landsliðnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×