Bílar

3 nýir jeppar frá Skoda

Finnur Thorlacius skrifar
Þessi mynd sýnir áætlanir Skoda fyrir Kína.
Þessi mynd sýnir áætlanir Skoda fyrir Kína.
Samkvæmt upplýsingum frá Skoda í Kína er von á þremur nýjum jeppum eða jepplingum við hinn nýja Kodiaq jeppa. Einn þeirra verður “coupe”-gerð af Kodiaq, einn verður öllu minni og arftaki Skoda Yeti en samt stærri bíll en núverandi Yeti.

Sá þriðji á svo að vera enn minni, bíll sem jafnvel væri byggður á sömu botnplötu og Fabia fólksbíll Skoda. Sá bíll gæti líka átt ýmislegt sameiginlegt með Volkswagen Polo Crossover og nýjum SEAT Arona. Á meðfylgjandi mynd eru tveir þessara bíla kallaðir Model K og Model Q, hvað svo sem það stendur fyrir, en ljóst má þó vera að þessir bílar séu komnir á teikniborðið hjá Skoda.

Einnig verður forvitnilegt að vita hvort þessum bílum verður ætlað að fara á aðra bílamarkaði en í Kína. Til stendur að sýna alla þessa bíla árið 2019 í Kína og að þeir verði allir framleiddir í verksmiðju Volkswagen í Shanghai í Kína.

Skoda Kodiaq jeppinn.





×