Fótbolti

270 mínútur og ekkert mark

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson í leiknum í kvöld.
Kolbeinn Sigþórsson í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik er lið hans, Nantes, gerði markalaust jafntefli gegn Lyon í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þrír leikir fóru fram í deildinni í kvöld og raunar lauk öllum með markalausu jafntefli. Meistararnir í PSG mættu Angers á útivelli og Lorient tók á móti Nice.

PSG er þó enn með örugga forystu á toppi deildarinnar en liðið er með 42 stig, fjórtán stigum meira en Caen sem erí öðru sæti. Angers er svo í þriðja sætinu með 27 stig.

Nantes er í tíunda sæti með 21 stig en Kolbeinn hafði verið í byrjunarliði liðsins í síðustu fjórum deildarleikjum á undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×