Tónlist

27 flytjendur bætast við Sónar

Freyr Bjarnason skrifar
DJ Flugvél og geimskip er ein þeirra sem hefur bæst við Sónar-hátíðina.
DJ Flugvél og geimskip er ein þeirra sem hefur bæst við Sónar-hátíðina. Vísir/Ernir
Alls hafa 27 flytjendur bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík sem verður haldin í þriðja sinn í Hörpu 12. til 14. febrúar.

Á meðal þeirra eru Súrefni, Valgeir Sigurðsson, M-band, Thor, DJ Flugvél og geimskip, Russian Girls og Lord Pusswhip.

Þar með hefur verið greint frá öllum þeim flytjendum sem koma fram á hátíðinni og verða þeir samanlagt 64 talsins. Þar á meðal eru Skrillex, Paul Kalkbrenner, SBTRKT, Jamie xx, Todd Terje, TV On the Radio, Kindness, Nina Kraviz, Jimmy Edgar, Elliphant, Ryan Hemsworth, Sophie, Samaris, Mugison, Prins Póló og Sin Fang.

Nýtt svið verður notað á Sónar Reykjavík í ár og bætist það við þau fjögur svið sem hingað til hafa verið notuð.

Margir þekktir tónlistarmenn hafa troðið upp á Sónar, þar á meðal James Blake, Diplo og Squarepusher. Miðasala á Sónar er í fullum gangi á Sonarreykjavik.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×