Lífið

250 þúsund sinnum horft á Gísla Pálma kýla Bam Margera

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bam Margera, til vinstri, ásamt röppurunum Gísla Pálma og Tiny.
Bam Margera, til vinstri, ásamt röppurunum Gísla Pálma og Tiny. Vísir
Myndband sem Vísir birti á sunnudaginn af samskiptum rapparanna Gísla Pálma og Tiny við Bam Margera á Secret Solstice um liðna helgi hefur verið spilað rúmlega 250 þúsund sinnum. Miðlar á borð við Vice, Philly.com og New York Daily News auk fjölmargra annarra hafa fjallað um málið og stuðst við myndbandið.

Í umfjöllun Vice kemur meðal annars fram að Margera hefði verið barinn í klessu af íslensku rappgengi sem beri heitið „The Glacier Mafia.“ Vísar miðillinn þar í rapparann Gísla Pálma og aðstoðarmenn hans sem sjá meðal annars um að skjóta og framleiða myndböndin við lög hans.

Blaðamaður Vice sér spaugilegu hliðina á þessu öllu saman og gerir endurtekið grín að Íslandi. Þannig sé Secret Solstice tónlistarhátíðin hefðbundin íslensk tónlistarhátíð þar sem fresta geti þurft dagskrárlið um heila klukkustund þar sem Busta Rhymes fái ekki hamborgarann sinn á réttum tíma. Rhymes var sem kunnugt er leynigestur á hátíðinni.

Kyssa börn Bjarkar góða nótt

Líkt og Vísir hefur fjallað um saka forsvarsmenn Secret Solstice Margera um að hafa áreitt konur sem sinntu öryggislgæslu á hátíðinni. Gísli Pálmi og Tiny slógu í kjölfarið ásamt fleirum til Margera en Vice gerir nokkuð úr þeirri staðreynd að Gísli Pálmi, sem nýtur töluverðra vinsælda um þessar mundir, sé sonur milljónamærings og eins ríkasta Íslendingsins.

Þá er komið inn á þá staðreynd að Margera, sem gifti sig hér á landi árið 2013, séu þekkt fyrir partýhald í Reykjavík. Blaðamaður Vice segir Reykjavík lítinn bæ þar sem maður geti drukkið við hlið þekktra tónlistarmanna á skemmtistöðum bæjarins og „svo gott sem kysst börnin hennar Bjarkar góða nótt.“

Myndbandið umtalaða má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Vildi mar gera á Margera

Notendur Twitter, innlendir sem erlendir, hafa gert sér mat úr slagsmálum gærkvöldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×