Erlent

25 manns á sjúkrahúsi eftir að hafa andað að sér reyk í vél British Airways

Atli Ísleifsson skrifar
Ekki liggur fyrir um ástæður þess að reykurinn barst í farþegarými vélarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Ekki liggur fyrir um ástæður þess að reykurinn barst í farþegarými vélarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
25 manns hafa verið fluttir á sjúkrahús í Vancouver í Kanada eftir að hafa andað að sér reyk um borð í farþegavél British Airways sem var á leið frá San Francisco til London í dag.

Breska blaðið Independent greinir frá þessu.

Vélinni var lent í Vancouver eftir að nokkrir í áhöfninni urðu skyndilega veikir.

Ekki liggur fyrir um ástæður þess að reykurinn barst í farþegarými vélarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×