Innlent

25 fjölskyldur fengu ferðastyrk

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutun í gær.
Styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutun í gær. Mynd/Icelandair
25 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals um 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, sumardaginn fyrsta.

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur – flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×