Erlent

25 börn fórust í loftárásum í Sýrlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Sýrlandsher og Rússar hafa gert fjölda loftárása á landsvæði þar sem ISIS-liðar ráða ríkjum.
Sýrlandsher og Rússar hafa gert fjölda loftárása á landsvæði þar sem ISIS-liðar ráða ríkjum. Vísir/AFP
Að minnsta kosti 25 börn voru í hóp hinna látnu eftir loftárásir sem beindust gegn þéttbýlum svæðum í borginni al-Quria í austurhluta Sýrlands um helgina.

Þetta er haft eftir UNICEF.

Sýrlensku mannréttindasamtökin SOHR, sem starfa í Bretlandi, hafa greint frá því að fleiri tugir manna hafi látið lífið í loftárásum Sýrlandshers og Rússa á laugardaginn.

Al-Quria er í héraðinu Deir al-Zor en hryðjuverkasamtökin ISIS stjórna þar stórum landsvæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×