Innlent

225 sækja um vottorð um hjúkrunarleyfi til að starfa í útlöndum

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Á undarnförnum vikum hafa rúmlega 180 hjúkrunarfræðingar sagt upp störfum í tengslum við kjaradeilur við ríkið. Þá hafa 225 einstaklingar óskað eftir hjúkrunarleyfi til að starfa í útlöndum. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Ólafur G. Skúlason segir þetta renna stoðum undir ótta hans um að fjöldauppsagnir verði ekki dregnar til baka.

„Ég hef ekki séð svona fjölda sækja pappíra til að sækja um leyfi erlendis síðan 2011.  Þetta sýnir að þeir sem hafa sagt upp eru raunverulega að hugsa sér til hreyfings,“ segir Ólafur.

Enn er að bætast í uppsagnir hjúkrunarfræðinga sem eru ósáttir við nýjan kjarasamning sem felur í sér 18,6% hækkun launa á samningstímanum sem nær til 31.mars 2019. „Ég hef heyrt það síðustu daga að það hefur bæst við uppsagnirnar.Hjúkrunarfræðingar eru enn að segja upp, enda eru þeir ekki margir sáttir við kjarasamninginn sem var undirritaður í vikunni.“

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hefst 4. júlí og stendur til 15. júlí og ætti niðurstaða hennar að liggja fyrir þá. Ólafur segist eiga erfitt með að meta hvort hjúkrunarfræðingar muni hafna samningnum en segir þá ósátta.

„Ég á svolítið erfitt með að meta það. Nú hef ég heyrt í töluvert mörgum hjúkrunarfræðingum og þeir virðast ekki vera sáttir. Það sem við vorum að gera var að leyfa hjúkrunarfræðingum sjálfum að ráða hvort þeir segja já eða nei við því sem ríkið var að bjóða. Ríkið er vissulega bundið af forsendum almenna markaðarins og getur ekki farið í þá vegferð sem við vorum að fara í sem var að reyna að minnka kynbundinn launamun hjá hinu opinbera og hjúkrunarfræðingar eru ekki sáttir við það.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×