Bílar

210 hestafla Yaris frumsýndur í Genf

Finnur Thorlacius skrifar
210 hestafla Yaris.
210 hestafla Yaris.
Toyota Yaris hefur hingað til ekki verið í boði sem spyrnukerra, en það er þó að breytast. Toyota ætlar að kynna 210 hestafla útgáfu þessa smávaxna bíls á komandi bílasýningu í Genf í mars. Aflið fær bíllinn frá nýrri 1,6 lítra forþjöppudrifinni fjögurra strokka vél sem á ýmislegt skylt við vélina sem er í rallkeppnisbílum Toyota.

Toyota ætlar ekki bara að kynna þessa kraftaútgáfu Yaris í Genf heldur einnig nýtt útlit Yaris yfirhöfuð. Kraftaútgáfan verður mjög auðkennanleg frá hefðbundnum Yaris með sinn svartlakkaða vindkljúf sem festur er við þakið aftast á bílnum. Auk þess verða hliðarspeglarnir svartir, sem og felgurnar.

Bíllinn stendur lægra á vegi, fjöðrunin verður stífari og bremsurnar stærri en í hefðbundnum Yaris. Toyota segir hinsvegar að ný kynslóð Yaris verði hlaðin af tækninýjungum og að aksturseiginleikar bílsins muni einnig batna umtalsvert. Í Genf verða allt í senn til sýnis hefðbundin ný gerð Yaris, kraftabíllinn og útgáfan sem notuð er í heimsmeistarakeppninni í rallakstri. R´ðett um 2 mánuðir eru í opnun bílasýningarinnar í Genf.

Einkennandi vindkjúfur að aftan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×