Tónlist

200 milljónir á fimm mínútum

Bob Geldof (til hægri) og Midge Ure eru mennirnir á bak við Band Aid 30.
Bob Geldof (til hægri) og Midge Ure eru mennirnir á bak við Band Aid 30. Vísir/Getty
Bob Geldof er hæstánægður með viðbrögðin við útgáfu Band Aid 30 af laginu Do They Know It´s Christmas Time? og segir að smáskífulagið hafi safnað einni milljón punda á aðeins fimm mínútum, eða tæpum 200 milljónum króna.

Þessi nýja útgáfa var frumflutt í sjónvarpsþættinum The X Factor í Bretlandi síðastliðinn sunnudag og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Fjölmargir keyptu lagið í gegnum iTunes.

„Fjórum eða fimm mínútum eftir að þátturinn var búinn höfðum við safnað milljón pundum. Það er ótrúlegt,“ sagði Geldof við BBC Radio.

Allur ágóðinn rennur til baráttunnar gegn ebóla-veirunni í vesturhluta Afríku. 

Á meðal þeirra sem syngja í laginu eru One Direction, Ed Sheeran, Bono, Elbow, Rita Ora og Ellie Goulding. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×