Viðskipti erlent

200 milljarða tilboði í Iceland var hafnað

Macolm Walker Stofnandi og forstjóri bresku matvörukeðjunnar Iceland Foods bauð 200 milljarða króna í fyrirtækið fyrir um fjórum mánuðum. Skilanefnd Landsbankans, sem á tæplega 70 prósenta hlut, leit ekki við því. Fréttablaðið/Hafliði
Macolm Walker Stofnandi og forstjóri bresku matvörukeðjunnar Iceland Foods bauð 200 milljarða króna í fyrirtækið fyrir um fjórum mánuðum. Skilanefnd Landsbankans, sem á tæplega 70 prósenta hlut, leit ekki við því. Fréttablaðið/Hafliði

Malcolm Walker, stofnandi og forstjóri bresku lágvöruverðskeðjunnar Iceland Foods, gerði tilboð í fyrirtækið fyrir fjórum mánuðum upp á einn milljarð breskra punda, jafnvirði um tvö hundruð milljarða íslenskra króna. Skilanefnd Landsbankans, sem fer með tæplega sjötíu prósenta hlut í Iceland Foods, leit ekki við því, samkvæmt staðfestum heimildum Fréttablaðsins.

Walker og stjórnendur Iceland Foods eiga 21 prósent í fyrirtækinu en skilanefnd Glitnis tíu prósent. Ekki liggur fyrir hvort um formlegt eða óformlegt tilboð var að ræða.

Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, kannast ekki við að tilboð hafi borist frá Walker.

„Þetta er sterkt og gott félag og eðlilegt að menn sýni því áhuga," segir hann. Skilanefndin stefni á að selja fyrir­tækið þegar forsendur eru til þess og viðunandi tilboð berist.

Malcolm Walker stofnaði Iceland Foods árið 1970. Fyrirtækið var fært undir móðurfélagið Big Food Group um síðustu aldamót og var Walker látinn taka pokann sinn. Baugur Group og Fons keyptu félagið árið 2005 ásamt öðrum fjárfestum og gömlu bönkunum. Samstæðunni var skipt upp og Walker ráðinn til Iceland á ný.

Viðsnúningur Walkers á rekstri verslunarinnar þykir með eindæmum enda hefur hún malað gull í efnahagsþrengingunum í Bretlandi.

Rekstrarhagnaður nam 135,4 milljónum punda, jafnvirði 25,6 milljarða króna, í fyrra og hefur aldrei verið meiri. Þá námu arðgreiðslur til fyrri eigenda 39 milljörðum króna fyrir þremur árum og var það stærsta arðgreiðsla Íslandssögunnar. Arður var ekki greiddur í fyrra. Þess í stað voru áhvílandi skuldir greiddar upp. Walker sagði, í samtali við breska fjölmiðla fyrr á árinu, verslunina líklega verðmætustu eign Íslendinga.

Viðmælendur Fréttablaðsins eru tvíbentir í afstöðu sinni til tilboðsins. Erfitt sé að verðmeta bresk fyrirtæki nú um stundir og því óvíst hvort einn milljarður punda sé viðunandi fyrir gullnámu á borð við Iceland Foods. Þá kunni eignaverð í Bretlandi að hækka í kringum Ólympíuleikana sem haldnir verða í Lundúnum eftir tvö ár. Á móti geti verið hagstætt fyrir skilanefndnina að losa sem fyrst um stórar eignir á borð við Iceland Foods, styrkja lausafjárstöðuna og greiða upp í kröfur, svo sem Icesave-skuldina.

jonab@frettabladid.is







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×