Leikjavísir

200 manna röð fyrir utan Elko

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikil eftirvænting fyrir nýju PS4 leikjatölvunni.
Mikil eftirvænting fyrir nýju PS4 leikjatölvunni. visir/valli
Playstation 4 leikjatölvan fór í sölu í kvöld, en Elko, Skífan og Gamestöðin voru með sérstaka kvöldopnun í tilefni útgáfunnar leikjatölvunnar hér á landi.

Leikjatölvan hefur notið gríðarlegrar vinsælda í heiminum eftir að hún kom út.

Playstation 4 hefur selst í yfir fjórum milljónum eintaka og seldist upp fljótlega í Bandaríkjunum eftir að hún kom út.

Mikil röð hefur myndast fyrir utan Elko í Kópavogi þar sem spenntir aðdáendur hafa staðið í þó nokkra stund en um 200 manns eru fyrir utan verslunina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×