Erlent

20 þúsund buðu flóttafólk velkomið í Vínarborg

Atli Ísleifsson skrifar
Fólkið bauð flóttafólki velkomið til Austurríki.
Fólkið bauð flóttafólki velkomið til Austurríki. Vísir/AP
Um 20 þúsund manns mótmæltu þeirri meðferð sem flóttafólk fær á leið sinni yfir Balkanskagann á leið sinni til aðildarríkja Evrópusambandsins á götum Vínarborgar fyrr í kvöld.

Málefni flóttafólks hafa mikið verið rædd í Austurríki og víðar eftir að 71 flóttamaður fannst látinn í vörubíl á hraðbraut nærri Parndorf í Austurríki í síðustu viku.

Mótmælendurnir söfnuðust saman á lestarstöðinni Westbahnhof og gengu um margar af helstu verslunargötum austurrísku höfuðborgarinnar. Gengu þeir með skilti þar sem flóttafólki var boðið velkomið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×