Viðskipti innlent

20 milljónir tölvupósta í Al-Thani málinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember 2013.
Frá aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember 2013. Vísir/Daníel
Sérstakur saksóknari lagði hald á um 20 milljónir tölvupósta í Al-Thani málinu. Þetta kom fram í seinni ræðu Björns Þorvaldssonar, saksóknara, í málflutningi í Hæstarétti í dag. Þar svaraði hann ýmissi gagnrýni sem verjendur sakborninga í málinu höfðu sett fram en þar á meðal var takmarkað aðgengi þeirra að gögnum málsins.

Björn sagði það ekki rétt að Hreiðar Már hefði ekki fengið neitt yfirlit yfir haldlögð gögn í málinu eins og verjandi hans hélt fram í gær. Það væri hins vegar rétt að halda því til haga að í skrá yfir haldlögð gögn væri ekki að finna útlistun á tölvupóstum og símtölum sem stuðst hafi verið við við rannsókn málsins.

„Það var hald lagt hald á um 20 milljónir tölvupósta. Yfirlit yfir þá myndi telja um 400.000 síður. Ég veit ekki hvort einhverjum væri gerður greiður með slíku yfirliti,“ sagði saksóknari.

Ekkert athugavert við alþjóðlega handtökuskipun

Þá svaraði Björn fyrir alþjóðlega handtökuskipun sem gefin var út á hendur Sigurði Einarssyni í maí 2010. Hann var því eftirlýstur af Interpol um tíma.

Verjandi Sigurðar gerði alvarlegar athugasemdir við það hvernig staðið var að handtökuskipuninni og taldi hana brjóta bæði í bága við íslensku stjórnarskrána og Mannréttindasáttmála Evrópu. Til þessa mætti líta hvað varðar frávísun málsins frá dómi.

Saksóknari sagði að ef staðið hefði verið rangt að einhverju í tengslum við handtökuskipunina þá ætti ákærði kannski bótakröfu á ríkið. Það myndi þó aldrei leiða til frávísunar. Að þessu sögðu mótmælti hann því svo að nokkuð athugavert hefði verið við handtökuskipunina.

Framburðir vitna studdir samtímagögnum

Hvað varðaði trúverðugleika vitna í málinu sagði saksóknari framburði þeirra tveggja vitna sem verjendur töldu ótrúverðuga, vera studda samtímagögnum í málinu, til dæmis tölvupóstum og símtölum. Þetta hafi verjendur ekki minnst á.

Svo mótmælti hann því harðlega að framburður annars vitnisins, Eggerts Hilmarssonar, hafi verið settur í samhengi við það að hann hafði réttarstöðu grunaðs manns í öðru máli.

„Ég velti því fyrir mér hvort að ákærði sé að gefa í skyn að ef Eggert Hilmarsson gæfi góðan framburð í þessu máli þá yrði hann ekki í ákærður í öðru máli. Ef verið er að halda þessu fram er það furðulegur málflutningur og mjög alvarlegt ef verið er að saka rannsakendur um slík vinnubrögð.“

Að lokum kom saksóknari stuttlega inn á meint vanhæfi sérfróðs meðdómanda, Magnúsar Benediktssonar, en hann sagði í málflutningi í gær að það væri óheppilegt að Magnús hefði átt í lánaviðskiptum við Kaupþing.

Saksóknari sagði í dag að það væri sitthvor hluturinn, það að eitthvað sé óheppilegt og það að einhver sé vanhæfur. Lögformlega væri Magnús hæfur til að fara með málið.

Málflutningi lauk í hádeginu í dag og hefur verið dómtekið. Niðurstaða ætti að liggja fyrir innan fjögurra vikna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×