Innlent

2.300 nýjar félagsíbúðir og tollar á skó og fatnað felldir niður

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ráðherrarnir Eygló, Bjarni og Sigmundur kynna áformin í stjórnarráðinu í morgun.
Ráðherrarnir Eygló, Bjarni og Sigmundur kynna áformin í stjórnarráðinu í morgun. vísir/gva
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra kynntu í morgun aðgerðir ríkisstjórnar Ísland til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum markaði. Meðal þess sem er á áætlun eru 2.300 nýjar félagsíbúðir og að auki verða tollar á skó og fatnað felldir niður í lok árs.

Aðgerðirnar eru í alls ellefu liðum og snúa að skatta-, velferðar- og húsnæðismálum sem og málum á sviði hagstjórnar og opinberra fjármála. Breyta á tekjuskatti einstaklinga sem mun helst nýtast þeim sem teljast til millitekjuhóps. Skattþrepunum verður fækkað úr þremur í tvö og persónuafsláttur hækkaður til samræmis við verðlag.

Stefnt er að því að 2.300 félagslegar leiguíbúðir verði byggðar á árunum 2016-2019 en ef væru þær sér sveitarfélag yrði það það tíunda stærsta á landinu. Íbúar þeirra yrðu fleiri en íbúar Ísafjarðar og Egilsstaðar til að mynda. Stefnt er að því að leiga tekjulágseinstaklings verði ekki nema í mesta lagi fjórðungur ráðstöfunartekna hans.

Að auki á að stuðla að lækkun byggingarkostnaðar með reglugerðarbreytingum, húsnæðisbætur verði hækkaðar til að styðja við almennan leigumarkað og skattlagningu breytt í þeim tilgangi að lækka leiguverð. Stefnt er að því að koma sérstaklega til móts við þá sem kaupa sína fyrstu íbúð, m.a. með úttekt á séreignarsparnaði.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að með þessum aðgerðum eigi þau markmið að nást sem hún hefur lagt mesta áherslu á í húsnæðismálum.

Í því skyni að bæta samspil ríkisfjármála, peningastefnu og vinnumarkaðar lýsir ríkisstjórnin sig reiðubúna að stofna sérstakt þjóðhagsráð þar sem aðild eigi oddvitar ríkisstjórnar og fulltrúar Seðlabankans, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins.

Aðrar aðgerðir lúta að jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða, niðurfellingu tolla á fatnað og skó, lækkun á kostnaði sjúklinga, auknum framlögum til framhaldsfræðslu og starfsmenntunar, átaki gegn skattaundanskotum, einföldun og endurskoðun regluverks og eftirlits með atvinnustarfsemi.

Tilkynningu ríkisstjórnarinnar má lesa í heild sinni með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×