Nú eru aðeins rétt rúmar tvær vikur í opnun margra vinsælla veiðivatna og má sjá lista yfir þau hér fyrir neðan. Með hækkandi sól eykst spenningurinn hjá veiðimönnum og margir langt komnir með að hnýta flugur fyrir sumarið. Vinsælustu vorveiðivötnin hafa verið Vífilsstaðavatn og Meðalfellsvatn.
Þegar á að veiða silung í vötnum að vori er oft gott að huga að hitastigi. Snillingarnir vilja meina að ef að lofthiti er 8° eða meira þá er það nægjanlegt til að bleikjan taki við sér og fari á stjá. Þetta hefur sannað sig vel t.d. í Vífilsstaðavatni en 1. apríl í fyrra var lofthiti um 3° og lítið sem ekkert gekk en 1. apríl 2009 var lofthiti um 10° og þá gekk veiðimönnum mun betur að veiða. Urriði og sjóbirtingur eru ekki eins viðkvæmir fyrir lofthitanum og eru frekar á hreyfingu í lægra hitastigi, enda hefur það sýnst sig t.d. í Meðalfellsvatni að veiðimenn hafa verið að fá fína veiði þar þrátt fyrir kulda. Veiðimenn eru öllu jöfnu miklir bjartsýnismenn og vonum við að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og gefi okkur gott veiðiveður 1. apríl nk.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Veiðin í ánni Tay í Skotlandi, sem er ein af bestu laxveiðiám Bretlandseyja, tók stökk í apríl samanborið við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram á breska vefnum The Telegraph.
Meira
Gunnar Bender hefur ákveðið að vera með veiðiþáttinn Veiðivaktina á sjónvarpsstöðinni ÍNN í sumar. Veiðiáhugamenn hljóta að fagna þessu enda er Gunnar þekktur fyrir skemmtileg efnistök og mikinn húmor...
Meira
Veiðifélag Eldvatns hefur rift samningi við Verndarsjóð sjóbirtingsins, sem Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður, er meðal annars í forsvari fyrir. Veiðipressan greindi frá þessu í morgun. Veiðivísir hefur...
Meira
Þetta er mjög sérstakt árferði í veiðileyfasölu, ég held að staðan á íslenska veiðileyfamarkaðnum sé algerlega án fordæma. Erlendir veiðimenn hafa dregið úr komum sínum hingað og þeir íslensku halda a...
Meira
Þá var hann ásamt einum öðrum veiðimanni á morgunfjörunni og náðu þeir að landa 13 sjóbleikjum og settu í mun fleirri svo hún er allavega mætt á svæðið.
Meira
Veiðifélag Norðurár hefur ákveðið að fela stjórn félagsins að sjá um sölu veiðileyfa sumarið 2014. Verður það gert í samvinnu við Einar Sigfússon, eiganda Haffjarðarár. Þetta kemur fram í tilkynningu ...
Meira
Við vatnið eru nú starfandi ellefu veiðiverðir auk þjóðgarðsvarða, og virðist sem að veiðibrotum með ólöglegri beitu hafi verið að mestu útrýmt á bökkum Þingvallavatns. Veiðin í vatninu hefur verið gó...
Meira
En svo eru það þeir sem ganga skrefinu lengra og halda sjálfir niður í djúpið og mynda þessa eftirsóknarverðu bráð okkar í hennar náttúrulega umhverfi. Erlendur Guðmundsson atvinnukafari er einn þeirr...
Meira
"Það hefur staðið yfir barátta gegn því að það verði settar upp 10-15 þúsund tonna fiskeldisstöðvar í Galway-flóanum á Írlandi. Þetta hefur verið mikil barátta og ég hef reynt að leggja henni svolítið...
Meira
Stjórn Stangveiðifélags Reykjavíkur mun ekki opna Norðurá í sumar eins og hefð er fyrir heldur selja hana ef viðundandi verð fæst fyrir. "Ef svo fer sem horfir munum við auglýsa eftir tilboðum strax í...
Meira
Fyrir utan gærdaginn hefur verið frekar kalt í veðri síðustu daga og því lítið um fréttir úr stóru vötnunum. Á vef Veiðikortsins er stiklað á stóru í fréttum af vötnunum og virðist sem þau séu að taka...
Meira
Í tilefni af 10 ára afmæli Stangveiðifélags Akureyrar (SVAK) ætlar félagið að bjóða 10. bekkingum í öllum grunnskólum Akureyrar uppá frítt fluguveiðinámskeið í júnímánuði.
Meira
Silungsveiði í Elliðaánum hefur verið með ágætum undanfarið eftir erfiða byrjun. Urriðinn er farinn að sækja í æti eftir að hlýna fór í veðri, fluguveiðimönnum til mikillar ánægju. Þetta kemur fram á ...
Meira
"Þetta hefur verið óvenju gott það sem af er sumri," segir Hrafn H. Hauksson, nítján ára veiðimaður úr Veiðifélaginu Kvistum, sem veiddi 14-15 punda urriða í Varmá þann 1. maí síðastliðinn. "Hann var ...
Meira
Ekkert sást til veiðimanna í landi þjóðgarðsins þegar heimildarmaður Veiðivísis var við Þingvallavatn í hádeginu í dag. Við Elliðaár var ekki nokkur maður heldur á sama tíma. Veiðitímabilið hófst á þe...
Meira
Gríðarlegur fjöldi sumargamalla laxaseiða í vatnakerfi Elliðaánna vekur upp vonir um mjög sterkan gönguseiðastofn í ánum á næsta ári þegar megnið af þeim gengur í sjó. Ef skilyrði til uppvaxtar seiðan...
Meira