Viðskipti innlent

183 milljóna tap á borunum í Öxarfirði

ingvar haraldsson skrifar
Íslensk orka ehf. er að mestu í eigu opinbera orkufyrirtækja. Landsvirkjun lagði fyrirtækinu til 46 milljónir í hlutafé.
Íslensk orka ehf. er að mestu í eigu opinbera orkufyrirtækja. Landsvirkjun lagði fyrirtækinu til 46 milljónir í hlutafé. vísir/vilhelm
Fyrirtækið Íslensk orka ehf. tapaði 183 milljónum á síðasta ári. Félagið, sem er að mestu í eigu opinbera orkufyrirtækja, var stofnað árið 1999 til að rannsaka meint háhitasvæði í Öxarfirði og vann að jarðborunum á svæðinu. Háhitasvæðið reyndist geyma mun minni varma en vonir stóðu til að sögn Franz Arnarson, fyrrum forstjóra Norðurorku, stærsta hluthafa Íslenskrar orku.

Tapið nú er vegna afskrifta á þeim rannsóknarkostnaði sem fyrirtækið lagði í á svæðinu en talið er ljóst að verkefnið muni ekki borga sig. Afskriftirnar nemur nær öllu hlutafé sem lagt var í félagið, eftir standa 800 þúsund krónur.

„Þetta reyndist vera hátt láhitasvæði eða kalt láhitasvæði. Þar af leiðandi verða tekjur af þessu ævintýri aldrei nógu miklar til að vega upp þann mikla kostnað sem lagt var í. Þetta er eitt af þessum rannsóknarverkefnum sem menn lögðu í gefur ekki eins og við var búist eins og eðli rannsóknarverkefna er,“ segir Franz.

Ýtt á undan sér að afskrifa tapið

Franz segir að menn hafi ýtt því á undan sér í nokkur ár að afskrifa tapið því staðan hafi verið ljós um talsverða hríð. Því var ákveðið að ljúka afskriftunum á síðasta ári.

Félagið er að mestu í eigu ríkisins og sveitafélaga á Norðurlandi í gegnum orkufyrirtækin Norðurorku sem á 29,2 prósent í félaginu, Landsvirkjun sem á  27,1 prósent, Orkuveitu Húsavíkur sem á  25,4 prósent og Rarik sem á 1,8 prósent. Þá á Jarðorka hf 16,4 prósent í félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×