Viðskipti innlent

176 breytingar á skattkerfinu á átta árum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frosti Ólafsson er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Frosti Ólafsson er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Frá árinu 2007 hafa verið gerðar 176 breytingar á skattkerfinu. Breytingarnar skiptast í 44 skattalækkanir og 132 skattahækkanir. Fyrir hverja skattalækkun hafa því skattar verið hækkaðir þrisvar sinnum. Þetta eru niðurstöður uppfærslu á yfirliti Viðskiptaráðs Íslands yfir skattabreytingar undanfarinna ára.

Viðskiptaráð segir að undanfarin tvö ár hafi stjórnvöld undið ofan af óhagfelldri þróun skattkerfisins árin á undan. Boðaðar aðgerðir um lækkun og einföldun tekjuskatta ásamt afnámi tolla á fatnað og skó séu í því samhengi fagnaðarefni. Það er von Viðskiptaráðs að stjórnvöld haldi áfram að lækka skatta á ný á komandi árum.

Veigamestu breytingarnar frá árinu 2007 eru eftirfarandi:

• Tekjuskattur einstaklinga hefur hækkað um 34%

• Útsvar hefur hækkað um 11%

• Fjármagnstekjuskattur hefur hækkað um 100%

• Erfðafjárskattur hefur hækkað um 100%

• Áfengisgjöld hafa hækkað um 60%

• Kolefnisgjöld á bensín og díselolíu hafa hækkað um 100%

• Tryggingagjald hefur hækkað um 37%

• Útvarpsgjald hefur hækkað um 75%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×