17 þingmenn hafa frest út daginn Magnús Már Guðmundsson skrifar 15. júní 2009 13:39 Mynd/Anton Brink
17 þingmenn hafa frest út daginn til að upplýsa um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Þar á meðal eru tveir ráðherrar Vinstri grænna og níu þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Á fimmtudaginn höfðu 28 þingmenn af 63 upplýst um hagsmunatengsl sín en síðan hafa 18 þingmenn skráð upplýsingarnar. Fjármál stjórnmálaflokka, einstakra stjórnmálamanna og hagsmunatengsl hafa lengi verið mikið til umræðu. Forsætisnefnd Alþingis samþykkti í mars reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum þeirra utan þings. Reglurnar tóku gildi 1. maí en þingmenn ákveða sjálfir hvort þeir upplýsi um hagsmuni sína. Hægt er að nálgast upplýsingarnar á vef Alþingis. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að þingmönnum hafi verið gefinn frestur til og með 15. júní, sem er í dag, til að skrá umræddar upplýsingar.Ásbjörn á hlut í þremur fyrirtækjum Þegar nýjar upplýsingar, það er frá þingmönnum sem upplýst hafa um hagsmuni sína frá því á fimmtudaginn, eru skoðaðar kemur í ljós Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum ráðherra á 1,8 milljón stofnfjárhlut í Sparisjóði Bolungarvíkur. Flokksbróðir hans Ásbjörn Óttarsson á allt að helmings hlut í fyrirtækjunum Nesver, Hlíðarfoss og Fiskmarkaður Íslands. Þá á Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, 10% hlut í Sero sem framleiðir bragðefni með ensím. Verðmæti hlutarins er óljóst.Þiggja laun samhliða þingmennsku Tveir Þingmenn Samfylkingarinnar þiggja laun fyrst um sinn vegna fyrri starfa sinna. Valgerður Bjarnadóttir gegnir hálfu starfi sviðsstjóra innkaupa á Landspítala fram til júlíloka. Þá þiggur Sigmundur Ernir Rúnarsson biðlaun út sumarið eftir brotrekstur fjölmiðlafyrirtækinu 365. Á sama tímabili hefur hann afnot af bifreið, fartölvu og síma í eigu fyrirtækisins.
Tengdar fréttir Ráðherra á milljónahlut í Byr Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, er hluthafi í Byr en hlutur hans samkvæmt stofnfjáreign er 5,6 milljónir króna. Þetta kemur fram þegar rýnt er í upplýsingar um hagsmunatengsl þingmanna. Hefð virðist hafa myndast fyrir því að ráðherrar sem heita Árni eigi hlut í Byr því nafni hans Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, á einnig hlut í sparisjóðnum. 11. júní 2009 16:14 27 þingmenn hafa upplýst um hagsmunatengsl sín 27 af 63 þingmönnum hafa upplýst um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Þar á meðal eru allir þingmenn Framsóknarflokksins og fimm ráðherrar. 11. júní 2009 14:53 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Ráðherra á milljónahlut í Byr Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, er hluthafi í Byr en hlutur hans samkvæmt stofnfjáreign er 5,6 milljónir króna. Þetta kemur fram þegar rýnt er í upplýsingar um hagsmunatengsl þingmanna. Hefð virðist hafa myndast fyrir því að ráðherrar sem heita Árni eigi hlut í Byr því nafni hans Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, á einnig hlut í sparisjóðnum. 11. júní 2009 16:14
27 þingmenn hafa upplýst um hagsmunatengsl sín 27 af 63 þingmönnum hafa upplýst um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Þar á meðal eru allir þingmenn Framsóknarflokksins og fimm ráðherrar. 11. júní 2009 14:53