Viðskipti erlent

17 prósent samdráttur í hagnaði HSBC

Jón Hákon Halldórsson skrifar
HSBC hefur glímt við erfiiðleika.
HSBC hefur glímt við erfiiðleika. NordicPhotos/afp
Hagnaður HSBC bankans dróst saman um 17 prósent á síðasta ári. Nam hagnaður bankans 18,7 milljörðum dala, 2500 milljörðum króna, eftir því sem fram kemur á vef BBC.

Talsmenn bankans segja að skýringarnar liggi meðal annars í 2,4 milljarða dala sektum sem hafa verið lagðar á bankann.

HSBC bankinn hefur átt í erfiðleikum að undanförnu en starfsmenn bankans eru grunaðir um að hafa aðstoðað fólk að svíkja undan skatti með því að nota leynireikninga bankans í Genf.

Tekjur Stuarts Gulliver, forstjóra HSBC, lækkuðu snarlega á síðasta ári. Fóru úr 8,03 milljónum punda, eða 1224 milljónum króna, í 7,6 milljónir punda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×