Golf

17 ára unglingur tryggði sér 180 milljónir króna um helgina

Lydia Ko hafði ríka ástæðu til að fagna um síðustu helgi.
Lydia Ko hafði ríka ástæðu til að fagna um síðustu helgi. AP
Hin 17 ára Lydia Ko, sem hefur á skömmum tíma skotist upp á stjörnuhimininn í golfheiminum en hún kórónaði frábært ár á LPGA-mótaröðinni um síðustu helgi með því að sigra á CME Group Tour meistaramótinu sem haldið var á Ritz Carlton vellinum í Flórída.

Ko sigraði mótið eftir spennandi bráðabana við hina spænsku Carlottu Ciganda og Julieta Granada frá Paragvæ. Fyrir sigurinn fékk Ko rúmlega 60 milljónir íslenskra króna en þar sem hún sigraði einnig á tveimur öðrum mótum á árinu endaði hún efst á stigalista í lokamótaröð LPGA-mótaraðarinnar. Fyrir það fékk hún aukalega 120 milljónir króna.

Þegar að ég gekk inn og sá allan þennan pening í kistu í klúbbhúsinu hugsaði ég með mér hvað það væri magnað að sigra þetta, ég hef aldrei séð jafn mikinn pening á einum stað,“ sagði Ko við fréttamenn eftir hringinn.

Ko var þó ekki eina sem fagnaði mikið eftir lokahringinn á CME Group Tour meistaramótinu en Bandaríski kylfingurinn Stacey Lewis kórónaði sögulega þrennu með því að vera valin kylfingur ársins á LPGA-mótaröðinni, að vera með besta meðalskorið á mótaröðinni og fyrir að hafa halað inn mestum pening á árinu.

LPGA-mótaröðin fer núna í frí en hefst aftur í janúar á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×