Leikjavísir

15 mínútur af Uncharted 4

Samúel Karl Ólason skrifar
Uncharted 4: A Thief's End mun koma út í byrjun næsta árs og þá eingöngu á PS4.
Uncharted 4: A Thief's End mun koma út í byrjun næsta árs og þá eingöngu á PS4. Mynd/Naughty Dog
Sony birti í gær 15 mínútna langt myndband úr leiknum Uncharted 4: A Thief's End. Leikurinn fjallar um fjársjóðsleitarmanninn Nathan Drake og ævintýri hans. Að þessu sinni er Nate hættur störfum en dregst aftur inn heim þjófanna.

Hann þarf að fletta ofan af samsæri tengdu sögufrægum fjársjóði.

Í myndbandinu sem birt var í gær má sjá skotbardaga og bílaeltingarleik þar sem Nate og vinur hans Sully reyna að koma Sam, bróður Nate, til bjargar.

Uncharted 4: A Thief's End mun koma út í byrjun næsta árs og þá eingöngu á PS4.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×