Innlent

145 prósenta fjölgun í tölvunarfræðigreinum

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Áhugi nemenda á tölvunarfræðigreinum hefur aukist mikið undanfarin fimm ár. Fréttablaðið/Ernir
Áhugi nemenda á tölvunarfræðigreinum hefur aukist mikið undanfarin fimm ár. Fréttablaðið/Ernir Vísir/Ernir
Alls voru 1.604 nemendur skráðir í nám við tölvunarfræðideildir í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík árið 2014. Það er fjölgun um 145,3 prósent frá því fyrir fimm árum, þegar 654 nemendur voru skráðir í tölvunarfræði við báða skólana.

„Það er engin ein skýring á þessu. Við höfum séð það í gegnum tíðina að áhuginn á þessu hefur gengið í bylgjum og ræðst mikið af umfjölluninni í samfélaginu hverju sinni,“ segir Yngvi Björnsson, deildarforseti tölvunarfræðideildar við Háskólann í Reykjavík, um aukinn fjölda nemenda.

Yngvi segir þennan aukna fjölda í tæknigreinum ekki séríslenskt fyrirbæri heldur alþjóðlegt.

Yngvi Björnsson
„Tæknifyrirtækin sem hafa orðið til síðustu áratugi, Google, Facebook og fleiri, ýta undir áhugann og þar að auki er mikill áhugi fyrir öppum. Tæknin og notkunin er komin svo nálægt fólki.“

Yngvi segir að einnig hafi það sýnt sig að tæknistörfin komi vel út á krepputímum, þá sé þrátt fyrir allt enn mikil eftirspurn eftir fólki með slíka sérþekkingu og það spili vafalaust inn í.

„Svo var gert átak hérlendis í því að efla vitund fólks fyrir tækninámi og mikilvægi slíkrar menntunar,“ segir Yngvi.

Fjöldi kvenna við tölvunarfræðideildirnar hefur einnig aukist. Árið 2009 voru konur 99 en eru nú 345. Það er aukning upp á 248,5 prósent á aðeins fimm árum.

Yngvi segir að Háskólinn í Reykjavík sé nú að taka á móti hæsta hlutfalli kvenna frá upphafi.

„Það er mjög jákvætt. Þetta er praktískt nám og það getur ráðið einhverju. Mögulega er það sem mestu skiptir að tölvunarfræðin hafði svolítinn nördastimpil á sér, ranglega. Fólk er farið að sjá að þetta eru ekki bara störf þar sem fólk er eitt í tölvunni úti í horni í vinnunni heldur gjarnan í hópavinnu, í návígi við annað fólk og ég held að það hafi náðst að breyta þessum stimpli. Oft er um að ræða lifandi og skemmtileg fyrirtæki sem starfa í þessum bransa. Ég held að það hafi áhrif á áhuga almennings og ekki síst stúlkna,“ segir Yngvi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×