Erlent

14 ára stúlka kærir Facebook vegna hefndarkláms

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Árið 2011 greindi Facebook frá því að nýtti sér tólk frá Microsoft, svokallað PhotoDNA, til þess að bera kennsl á myndir og efni sem mætti flokka sem kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Árið 2011 greindi Facebook frá því að nýtti sér tólk frá Microsoft, svokallað PhotoDNA, til þess að bera kennsl á myndir og efni sem mætti flokka sem kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Vísir/Getty
Dómari í Belfast á Norður-Írlandi hefur hafnað beiðni bandaríska stórfyrirtækisins Facebook um að vísa frá kæru 14 ára stúlku sem hefur kært fyrirtækið vegna ítrekaðar birtingar á nektarmynd af stúlkunni.

Lögfræðingar stúlkunar segja að maður, sem einnig hefur verið kærður af stúlkunni, hafi ítrekað birt nektarmyndina af stúlkunni á samfélagsmiðlinum Facebook til þess að hefna sín á henni.

Vildi Facebook að málinu yrði vísað frá á þeim grundvelli að fyrirtækið hafi oftar en einu sinni tekið myndina niður en lögfræðingar hennar segja að það hafi ekki dugað til. Facebook væri með tæki og tól til þess að koma í veg fyrir myndbirtingu slíkra mynda og hefði átt að koma í veg fyrir að hægt væri að birta myndina aftur eftir að búið var að taka hana niður einu sinni. Hafnaði dómari beiðni Facebook og mun málið fara fyrir dóm

Sjá einnig: „Þetta er ekki klám heldur ofbeldi“

Þessi mynd þótti of gróf fyrir Facebook en nektarmynd af hinni 14 ára gömlu stúlku slapp ítrekað í gegn.Mynd/Aftenposten
Árið 2011 greindi Facebook frá því að nýtti sér tólk frá Microsoft, svokallað PhotoDNA, til þess að bera kennsl á myndir og efni sem mætti flokka sem kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Á það að bera kennsl á slíkar myndir og koma í veg fyrir að hægt sé að deila þeim á Facebook. Er tólið enn í notkun en Facebook hefur ekki svarað spurningum um hvernig myndin sem um ræðir í þessu máli hafi sloppið í gegnum PhotoDNA.

Lögfræðingar stúlkunnar segja að myndbirtingin sé skýrt dæmi um hefndarklám og megi einnig flokka sem kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Sækis stúlkan eftir skaðabótum, bæði frá Facebook og manninum sem birti myndirnar.

Varpar ljósi á ósamræmi Facebook

Paul Tweed, sérfræðingar í lagaumhverfi fjölmiðla, segir að málið varpi ljósi á ósamræmi í stefnu Facebook varðandi myndir þar sem sjá má 

nakta einstaklinga.

Stutt er síðan Facebook var harðlega gagnrýnt víða um heim fyrir að eyða færslum þar sem sjá mátti eina frægustu stríðsljósmynd allra tíma. Myndin var tekin í Víetnam-stríðinu og á henni sést nakin stúlka flýja undan napalm-árasum. Sagði Facebook að ljósmyndin bryti í bága við reglum Facebook um birtingu á myndum af nöktum börnum.

Facebook lét á endanum undan gagnrýninni sem skapaðist eftir að ritstjóri Aftenposten í Noregi gagnrýndi Mark Zuckerberg, stofnanda Facebook, harðlega fyrir stefnu fyrirtækisins í ritskoðun og sagði fyrirtækið ekki gera greinarmun á stríðsljósmyndum og barnaklámi.


Tengdar fréttir

Dómar falla þótt lög skorti um hrelliklám

Óleyfileg kynferðisleg myndbirting er daglegt brauð á internetinu. Fórnarlömb skammast sín oft of mikið til að kæra. Alþingi er langt á eftir tækninni í lögfestingu refsinga. Stundum liggur skemmtun eða gróðavon að baki hrellikláminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×