Glamour

13 ára dóttir Kate Moss tók forsíðuviðtal við Gigi Hadid

Ritstjórn skrifar
Gigi Hadid prýðir forsíðu Dazed.
Gigi Hadid prýðir forsíðu Dazed. Mynd/Getty
Gigi Hadid nældi sér í forsíðu tímaritsins Dazed fyrir októbermánuð. Það var engin önnur en Lila Grace Moss, dóttir Kate Moss, sem tók viðtalið við hana ásamt Stella Jones vinkonu sinni. 

Lila er aðeins 13 ára gömul en ásamt því að vera dóttir Moss þá er faðir hennar Jefferson Hack, einn af stofnendum Dazed. Í viðtalinu spurja þær Gigi spjörunum allt hvað varðar hversu mikilvægt það er fyrir ungar stúlkur að vera með sterkt sjálfstraust og koma einnig inn á það að tala um stráka. 

Það mætti segja að Lila sé með tímaritagenið en mamma hennar hefur setið fyrir á óteljandi forsíðum á seinustu tuttugu árum og pabbi hennar hefur lengi verið ritstjóri og blaðaútgefandi. 

Lila Grace ásamt móður sinni, Kate Moss.





×