Erlent

119 dæmdir í fangelsi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mohammed Morsi.
Mohammed Morsi. vísir/ap
Dómstóll í Egyptalandi dæmdi í dag 119 stuðningsmenn Mohammeds Morsi, fyrrverandi forseta Egyptalands, til þriggja ára fangelsisvistar fyrir þátttöku í mótmælum og óeirðum sem þeim fylgdi eftir að forsetanum var steypt af stóli á síðasta ári.

Að minnsta kosti fimmtíu létust og hundruðir slösuðust í mótmælum stuðningsmanna Morsi í fyrra.

Hundruð fylgismenn hans hafa verið dæmdir á undanförnum mánuðum. Í síðasta mánuði var réttað yfir 1.200 mönnum og voru 529 þeirra dæmdir til dauða fyrir morð á lögreglumönnum og árásir á fólk og eignir.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×