Innlent

115 ökuþórar brotlegir í Kópavogi

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Fimmtán prósent þeirra sem fylgst var með óku of hratt.
Fimmtán prósent þeirra sem fylgst var með óku of hratt. Vísir/GVA
Brot 115 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær að frásögn lögreglu.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 775 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt.

Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst. en á þessum vegarkafla er 80 km hámarkshraði.

Níu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106 km hraða. Allir brotlegir eiga von á sekt vegna brotanna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×