Innlent

100 spjaldtölvur í leikskóla í Kópavogi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hafdís Hafsteinsdóttir skólastjóri leikskólans Efstahjalla og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstóri Kópavogsbæjar með nemendum leikskólans við afhendingu spjaldtölva.
Hafdís Hafsteinsdóttir skólastjóri leikskólans Efstahjalla og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstóri Kópavogsbæjar með nemendum leikskólans við afhendingu spjaldtölva.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, afhenti leikskólastjórum bæjarins 100 spjaldtölvurnar og 20 fartölvur á leikskólanum Efstahjalla í dag.

Spjaldtölvurnar voru afhentar með fjölmörgum smáforritum, öppum, sem nýtast í kennslu á leikskólastigi en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Eftir afhendinguna í dag verða haldin námskeið fyrir alla kennara í leikskólum Kópavogs og framhaldsnámskeið fyrir þá kennara sem eru lengra komnir .

„Afhending spjaldtölva eru kaflaskil í leikskólastarfi í Kópavogi. Spjaldtölvurnar eru fyrirtaks viðbót við þann fjölbreytta efnivið sem leikskólarnir bjóða upp á til að örva börn í námi og leik.Spjaldtölvuvæðing leikskólanna er líka í góðu samræmi við þá stefnu meirihlutans að skólar í Kópavogi séu í fremstu röð. Öflug og rétt notkun upplýsingatækni á öllum skólastigum styrkir nemendur okkar, “ sagði Ármann Kr. Ólafsson við tækifærið.

Afhending spjaldtölvanna helst í hendur við uppsetningu þráðlauss nets í leik- og grunnskólum Kópavogs. Nettengin leikskólanna í Kópavogi, sem eru 19 talsins, var stækkuð þrefalt árið 2013 og er uppsetningu þráðlauss nets nú lokið í öllum nema tveimur leikskólum Kópavogs. Þráðlaust net eykur mjög á notkunarmöguleika spjaldtölva og fartölva í skólastarfi.

Í fyrra voru auk þess allar borðtölvur leikskólanna uppfærðar í vinnurýmum kennara og hjá stjórnendum. Um er að ræða samtals 100 öflugar borð- og fartölvur.

Kostnaður við uppsetningu á þráðlausu neti og kaup á búnaði fyrir leikskóla eru um 30 milljónir króna á þessu ári. Í þeirri upphæð er einnig kostnaður við lagfæringar á lögnum sem reyndust nauðsynlegur undanfari uppsetningarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×