Heilsa

10 skemmtilegar staðreyndir um líkamann

Rikka skrifar
Já, þú segir nokkuð ..
Já, þú segir nokkuð .. Mynd/getty
Líkaminn okkar er magnað fyrirbæri. Gerðar hafa verið ótal rannsóknir á honum, misjafnlega gáfulegar. En ef að við værum ekki forvitin þá vissum við ekki neitt.

Vissir þú til dæmis að:

.. manneskjan er 1 sentimeter hærri á morgnana en á kvöldin.. það munar um minna

.. DNA okkar mannveranna er 50% það sama og í bönunum … já og 90% með simpönsum.

.. blóð okkar mannanna ferðast tæplega 20.000 km um líkamann okkar á hverjum degi.

.. heilinn notar 20% af súrefnisupptöku líkamanns þrátt fyrir að vera aðeins um 2% af heildarþyngd meðalmanneskju.

.. það tekur tá- og fingurneglurnar um sex mánuði að vaxa frá rót að endanum.

.. þeim sem að dreymir meira eru víst með hærri greindarvísitölu..ææ

.. hnerri fer á allt að 160 km hraða..atsjú!!

.. meðalmannsekja leysir vind að meðaltali 14 sinnum á dag.

.. okkur er lífsins ómögulegt að kitla okkur sjálf.

.. eyrun okkar og nefið er það eina sem að heldur áfram að stækka eftir að við komumst á fullorðinsaldur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×