Tónlist

10 ný lög vikunnar - Arca, Father John Misty og Naughty Boy

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Father John Misty
Father John Misty vísir/getty
Like an Animal - RÜFÜS

Áströlsk sveit sem vinnur nú að sinni annarri plötu. Sú fyrri, Atlas, var vinsælasta plata heimalandsins árið 2013 en Like an Animal verður líklega að finna á plötu númer tvö.





As Crazy As It Is - ZHU X A-Trak X Keznamdi

Titillag fyrstu plötu ZHU sem væntanleg er á næstunni. A-Trak og Keznamdi voru honum innan handar við gerð þessa lags.



Brought to the Water - Deafheaven

Þriðja plata Deafheaven kemur út á morgun en hún hefur fengið nafnið New Bermuda. Aðdáendur hafa getað streymt plötunni í liðinni viku og er óhætt að fullyrða að platan sé hið minnsta á pari við síðustu plötur. 





Keep You on My Side - CHVRCHES

Skoska raftríóið CHVRCHES gaf út sína aðra plötu fyrir síðustu helgi en platan fylgir á eftir hinni framúrskarandi The Bones of What You Believe. Það vottar örlítið fyrir „second album syndrome“ en inn á milli má finna ágæt lög. 



The Memo - Father John Misty

Father Johm Misty er listamannsnafn Joshua Tillmann en hann var um skeið meðlimur Fleet Foxes. Síðasta áratuginn hefur hann gefið út fjölda af plötum, í upphafi undir eigin nafni en síðstu tvær sem Father John Misty. 





Save Me - MAJIK

Um MAJIK er ekki margt vitað annað en að þeir eru tveir sem mynda hana og þeir koma frá London. Save Me er annað lag sveitarinnar og hefur gefið nokkuð góða raun. 





Soichiro - Arca

Venesúelamanninn Arca þarf ekki að kynna en hann hefur í gegnum tíðina unnið með listamönnum á borð við Kanye West, FKA Twigs og nú síðast Kanye West. 



Newmyer's Roof - Craig Finn

Finn er þekktastur sem aðaldriffjöður New York sveitarinnar The Hold Steady. Önnur sólóplata hans, Faith in the Future, kom út í síðasta mánuði og þykir ágæt. 





Gone - Ofelia K

Örsnögg leit á netinu skilaði litlum upplýsingum um hver eða hverjir standa að baki Ofeliu K en lagið Gone má allavega heyra hér að neðan.



Running (Lose it all) - Naughty Boy ft. Beyoncé, Benjamin

Naughty Boy vinnur nú að sinni annarri plötu og er þetta fyrsta lagið sem heyrist af henni. Það er líklegt til að verða að gulli líkt og allt annað sem Beyoncé kemur nálægt. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×