Innlent

1.3 milljónir hafa safnast handa Ísabellu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Systurdóttir Ásdísar Hjálmsdóttur þjáist af Crohn's-sjúkdómi og reikningar eru að sliga fjölskylduna.
Systurdóttir Ásdísar Hjálmsdóttur þjáist af Crohn's-sjúkdómi og reikningar eru að sliga fjölskylduna. VÍSIR
Alls hafa safnast ríflega 10 þúsund dalir, rúmlega 1.3 milljónir króna, handa hinni sjö ára gömlu Ísabellu Hjálmdís sem greindist með Crohn's (bólgusjúkdómur í þörmum) og liðagigt fyrir rétt rúmum tveimur mánuðum síðan.

Afreksíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir, sem hefur keppt fyrir Íslands hönd í spjótkasti á Ólympíuleikunum, stendur að söfnuninni en Ísabella er systurdóttir Ásdísar. Systir Ásdísar býr í Flórída ásamt eiginmanni sínum, Brett, og tveimur dætrum þeirra.



Sjá einnig: Ólympíufari kemur systurdóttur sinni til hjálpar

Á Facebook-síðu sinni þakkar Ásdís fyrir stuðninginn við söfnunina en hún hefur nú staðið yfir í liðilega tvær vikur og hafa 128 einstaklingar látið fé af hendi rakna á þeim tíma. Stefnt var að því að safna um 15 þúsund dölum og hafa því um 68 prósent upphæðarinnar safnast á ekki lengri tíma en söfnunin mun standa yfir í 48 daga til viðbótar.

Þar segir hún einnig að þeir rúmlega 10 þúsund dalir sem safnast hafa standi undir kostnaðinum við fyrstu spítaladvölina hennar og sé það „gríðarlegur léttir“ fyrir Ísabellu og aðstandendur hennar.

Á heimasíðu söfnunnar segir að fjölskylda Ísabellu sé búin að „upplifa mjög erfiða tíma undanfarið” enda hafi stúlkan verið mikið veik í næstum tvö ár.

„Þau fóru fram og til baka á milli lækna, sérfræðinga og til sjúkraþjálfara til að reyna að finna út hvað væri að en enginn hafði svör. Hún gat ekki hlaupið um og leikið sér eins og önnur börn án þess að liggja grátandi með kælipoka og verkjatöflur um kvöldið. Auk þess var hún öll að rýrna og þroskaðist ekki eðlilega,“ sagði Ásdís í samtali við fréttastofu frá gangi sjúkdómsins, sem var greindur eftir langa sjúkrahúsdvöl og endurteknar rannsóknir.

Öllum þeim sem hafa áhuga á að styðja við bakið á Ísabellu og fjölskyldu hennar er bent á styrktarsíðu söfnunarinnar.  


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×