Lífið

„We in Switzerland love Iceland!“

Bjarki Ármannsson skrifar
Stemningin fyrir utan Wiener Stadhalle var orðin ansi mögnuð fyrr í dag þegar Davíð Lúther hjá Silent tók púlsinn á áhorfendum sem voru á leiðinni á Eurovision-keppnina.

Aðspurðir um gengi Íslands í kvöld voru flestir mjög jákvæðir og spáðu því að María Ólafsdóttir kæmist áfram með lagið Unbroken. Viðmælendurnir komu víða að, meðal annars frá Svíþjóð og Sviss, en föngulegur hópur Svisslendinga lýsti yfir mikilli væntumþykju í garð okkar Íslendinga.

Þá reyndu nokkrir að syngja lagið Unbroken, með misgóðum árangri þó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×