Innlent

„Vonbrigði að sjómenn séu búnir að fella samninginn“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Jens Garðar Helgason, formaður SFS.
Jens Garðar Helgason, formaður SFS. vísir/gva
Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), segir það vonbrigði að sjómenn hafi fellt nýgerðan kjarasamning. Nú þurfi að setjast við samningaborðið og ræða málin af skynsemi, frekar heldur en að stefna í verkföll.

„Það eru vissulega vonbrigði að sjómenn séu búnir að fella samninginn. Skipstjórnarmenn samþykkti samninginn en sjómenn felldu hann og það eru vissulega vonbrigði,” segir Jens.

Boltinn hjá sjómönnum

„En nú er boltinn hjá sjómannaforystunni, þeir felldu samninginn, þannig að það hlýtur þá þeirra að koma fram með nýjar kröfur sem verða þá teknar til skoðunar hjá okkur. Ég geri ráð fyrir að hitta sjómannaforystuna á allra næstu dögum til að ræða málin. En ég trúi því að menn reyni nú frekar að setjast niður og reyni að ná einhverri skynsemi í samningana frekar en að stefna með þetta í verkföll.”

Félagsmenn í Sjómannasambandi Íslands felldu í gær kjarasamning við SFS sem undirritaður var 24. júní síðastliðinn. Kosningin var afgerandi en sextíu og sex prósent félagsmanna höfnuðu samninginum en þrjátíu og þrjú prósent samþykktu hann.  Skipstjórnarmenn í Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands samþykktu hins vegar samninginn með 56,4 prósentum atkvæða.

Óvíst hverjar kröfurnar eru

„Þessi samningur sem var lagður fyrir var náttúrulega afrakstur margra mánaða samningavinnu og nú þurfum við bara að sjá hvað það er hvað sjómenn eru ósáttir við,” segir Jens.

Sjómenn munu á næstu dögum greiða atkvæði um hvort grípa eigi til verkfallsaðgerða. Sextán ár eru frá því að sjómenn fóru síðast í verkfall, en þá voru lög sett á verkfallið og gerðardómur fenginn til að leysa úr því. Jens segir ljóst að verkfall myndi hafa mikil áhrif.

„Það mun þýða það að flotinn stoppar meira og minna. Það þýðir ekkert annað. Þetta mun hafa mikil áhrif á þjóðarbúið ef verkföll sjómanna verða langvinn,” segir hann.


Tengdar fréttir

Sjómenn og útgerð slái bæði af kröfum sínum

Sjómenn á Akranesi eru tilbúnir að láta kné fylgja kviði með verkfallsaðgerðum í kjaradeilu sinni við útgerðarmenn. Aðstoðarframkvæmdastjóri SFS segir útgerð og sjómenn þurfa að mætast á miðri leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×