Handbolti

„Vonandi kom þetta spark í afturendann á réttum tíma“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
María Karlsdóttir, fyrirliði Hauka, og Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði Fram, með bikarinn sem liðin berjast um þessa helgina.
María Karlsdóttir, fyrirliði Hauka, og Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði Fram, með bikarinn sem liðin berjast um þessa helgina. vísir/anton brink
Undanúrslitin í Coca Cola-bikar kvenna í handbolta fara fram í Laugardalshöll í dag. Seinni leikurinn hefst klukkan 19.30 en þar eigast við Haukar og Fram.

Fram er í heildina búið að vera besta liðið í vetur en það trónir á toppnum í Olís-deildinni með 27 stig og tapaði ekki leik fyrr en í byrjun febrúar.

Þá tapaði liðið tveimur í röð en seinni tapleikurinn var einmitt á móti Haukum sem eru í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig.

„Við vissum að það yrði erfitt að fara í gegnum deildina taplausar. Við vorum ekki að spila nógu vel og vorum ólíkar sjálfum okkur. Vonandi kom þetta spark í afturendann á réttum tíma þannig við getum nýtt okkur þetta inn í bikarhelgina,“ segir Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði Fram sem sýndi styrk sinn í síðustu umferð þegar liðið rústaði Gróttu.

„Við vorum staðráðnar í að fá sjálfstraustið aftur upp fyrir bikarhelgina og við náðum því þokkalega. Þetta snerist fyrst og fremst um okkur. Við vorum bara lélegar og ólíkar sjálfum okkur. Við þurfum svolítið að einblína á okkur og fara yfir okkar leik og hvað við getum gert betur í staðinn fyrir að hugsa um hvað Haukarnir gera,“ segir Steinunn.

Haukarnir ætluðu sér að vinna deildarleikinn gegn Fram til að sýna sjálfum sér að það er hægt. María Karlsdóttir, fyrirlið Hauka, gerir ekki lítið úr mikilvægi sigursins.

„Þetta var mjög mikilvægt. Við töluðum um fyrir þann leik að við vildum sýna að það er hægt að vinna og fram og að við getum unnið þær,“ segir María.

„Við mættum í þann leik alveg brjálaðar og með það hugarfar að spila góðan leik og þar af leiðandi vinna Fram. Við einbeitum okkur að okkur og að spila okkar leik. Við viljum mæta með stemninguna í lagi.“

Haukarnir eru búnir að mæta í Höllina öll fjögur árin sem spilar hefur verið með „Final Four“-fyrirkomulaginu en aldrei hefur liðinu tekist að komast í úrslitaleikinn sjálfan.

„Við erum ekkert búnar að greina þetta þannig lagað en það er rétt að undanfarin fjögur ár höfum við stoppað í undanúrslitunum. Liðið hefur svo sem breyst á milli ára en það er klárlega þröskuldur sem við þurfum að komast yfir,“ segir María Karlsdóttir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×