Innlent

„Vissum að það vantaði meiri fisk“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Friðrik Þór
„Þetta fyrirtæki er burðarásin í Hrísey. Þetta er eins og Samherji myndi segja upp öllum sínum landverkamönnum á Akureyri,“ segir starfsmaður hjá útgerðarfélaginu Hvammi í Hrísey.

Öllum þrettán landverkamönnum hjá félaginu var sagt upp störfum í dag. Rúv greindi frá því fyrr í dag. Starfsmaðurinn, sem vildi ekki koma fram undir nafni enda enn að jafna sig á uppsögninni frá því í morgun, segir fólk af báðum kynjum og á öllum aldri missa vinnuna. Um hærra hlutfall af íbúum í Hrísey sé að ræða en almennt sé talið.

„Það búa bara 120-130 manns að staðaldri í Hrísey,“ segir starfsmaðurinn. Fleiri séu með skráð lögheimili í eynni og eigi þar hús. Því nái uppsagnirnar til rúmlega tíu prósenta íbúa Hríseyjar.

Viðmælandi Vísis segir að starfsmenn útgerðarfélagsins hafi vitað að reksturinn gengi ekki sem skildi.

„Við sem vinnum þarna höfum séð að það vantaði meiri fisk, meira hráefni. Markaðsmálin hafa verið mjög erfið að mér skilst af vinnuveitendum.“

Útgerðarfélagið hefur starfað í eynni frá aldamótum. Sá sem starfað hefur lengst hjá fyrirtækinu hefur verið þar frá upphafi. Uppsagnir taka gildi um mánaðarmótin en starfsmennirnir eru á þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Vísir/Friðrik Þór
Atvinnuhorfur í Hrísey eru ekki góðar. Brottflutningur þeirra 25 frá síðastliðnu hausti má að miklu leyti rekja til þeirra. Þannig hafi ein sjö manna fjölskylda flutt á brott í einu vetfangi þegar kræklingarækt í eynni var aflögð í nóvember.

Viðmælandi Vísis segist áður hafa verið í þessari stöðu. Án vinnu í Hrísey. Þá hafi hann ferðast til Akureyrar til vinnu en ferðalagið geti tekið upp í þrettán tíma.

„Það er hundleiðinlegt að vinna átta tíma en vera fjarri heimili í þrettán.“

Hann er óviss um hvað taki við hjá sér. Hann eigi fasteign í eynni sem að hafi náttúrulega mikið að segja.

„Maður er svolítið negldur hérna þess vegna. Svo er gott að búa hérna.“

Hann minnir á að í kringum aldamótin, þegar frystihúsið í eynni lokaði, hafi um 270 manns búið að staðaldri í eynni. Þá hafi fjöldi skólafólks flutt í eyjuna í vinnu yfir sumarið. Síðan þá hafi fólki fækkað.


Tengdar fréttir

13 manns sagt upp í Hrísey

Útgerðarfélagið Hvammur í Hrísey mun segja upp öllum landverkamönnum fyrirtækisins, sem er 15 talsins, um næstu mánaðarmót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×